Silja Súpermann

Súrsætt spjall Silju

13.07.2007 21:17:52 / silja

Myspace

Ú Ú ég var að fá mér myspace og er að sanka að mér vinum svo ef þér finnst ég mega skemmtileg þá endilega vertu vinur minn á myspace ;) Og ef þú átt ekki myspace, búðu þér til svoleiðis því ef ÉG var á undan þér að fá mér myspace þá hefur engan grun um hvað þú ert clueless og halló!! hehehehe....


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 21:42:34 / silja

Sauðburðurinn og meira sveitó

.. Var að koma heim úr sveitinni og váá hvað var gaman.. tók á móti fullt af lömbum og jiminn þau eru svoo mikil krútt.. Þó ég hafi þurft að vakna kl 6 á morgnanna þá var það vel þess virði.. svo eru komnir tveir heimalingar, annar var skírður Bambi við mjög hátíðlega athöfn en hann þarf líklega að "fara" þar sem hann er fatlaður og var þarafleiðandi yfirleitt kallaður fatli.. Málið er að hann getur ekki staðið, fram fæturnar á honum renna alltaf í sundur svona alveg eins og hjá Bamba þegar hann er að reyna að standa í fyrsta skipti.. ef einhver man eftir því úr barnæsku sinni ;) ég skal setja inn myndir af fatla að fleiri lömbum við fyrsta tækifæri. Einni rollunni tókst að týna lömbunum sínum, BÁÐUM og við vorum send í mission impossible, ég, Doddi, Ólöf og Stína að finna þessi blessuðu lömb, við örkuðum niður túnið í góðum norðanvindi og viti menn ég og Ólöf fundum og NÁÐUM tveimu einmanna lömbum. Við fórum niður í hús sigri hrósandi en til okkar mikillar gremju, aðeins til að komast að því að þetta voru ekki rétt lömb. Sem leiddi til enn ómulegra verkefnis, að finna réttu mömmurnar fyrir þessi lömb, en þau voru ekki einu sinni undan sömu rollunni.. En að því að við erum svona afskaplega klárar sveitastelpur þá fundum við fyrir eitthvað kraftaverk rollurnar sem áttu lömbin, í seinna skiptið var það reyndar meira lambið sjálft sem fann mömmu sína en þau þekktu jarmið í hvort öðru sem mér þótti afar merkilegt... ekki heyri ég mikinn greinarmun á jarminu í þessum rollum, en einnig er ólíklegt að þær þekki greinarmun í röddinni okkar.. eða hvað??  Það er yfirleitt talið að kindur séu með heimskari dýrum en ég er farin að hallast að því að það sé nú bara ekki alls ekki rétt, ég er ekki að segja að þetta séu bráðgáfuð dýr en ég er ekki að sjá að þær séu eitthvað heimskari en hestar ( nú verð ég hengd af hestafólki :haha: )  Nú er ég bara að reyna að redda mér fríi í vinnunni næstu helgi alveg óð í að komast í sveitina aftur.. líka því vinkona mín hún Guðrún Ósk er að fara að útskrifast og ætlar að halda lopapeysuútskriftarpartý í reiðskemmu sem getur ekki orðið neitt annað en bara skemmtilegt...

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 20:11:39 / silja

Miklar pælingar

Föstudagskvöld og ég er að vinna..  gífurlega spennandi:$  Er reyndar að vinna alla helgina svo ekki verður mikið annað afrekað þessa helgi. En prófin eru búin ;) og bara verkefna vinna eftir, erum búin að hittasta alla vikunna frá 9 til 16 og þetta er allt að gerast.. förum að fundast á mánudaginn sem verður bara gaman8)  En já ég hef frá voðalega litlu að seigja, lifi svo óspennandi lífi þessa dagana, er enn að jafna mig eftir prófin og þetta svaðalega fyllerí seinasta laugardag, kem heim á daginn og lamast fyrir framan imbann, fæ bráðum svona kassalaga augu eins og var alltaf verið að vara mig við á mínum yngri árum þegar ég horfði of mikið á sjónvarpið að mömmu áliti.. Ég horfði aldrei á sjónvarpið á Grettisgötunni, náði heldur engri stöð nema stöð eitt illa. Þá var maður líka svo duglegur, alltaf að finna sér eitthvað skemmtilegt að gera.. ohh hvað ég sakna þeirra tíma stundum, 17-20 ára eru án efa mest spennandi árin en einnig líka þau erfiðistu, maður var svo hrikalega dramatískur þá eitthvað og með hausinn í skýjunum en það var gaman... :haha: Nú eru allir orðnir harðgiftir og jafnvel með krakka á leiðinni og engin hefur tíma til að rúnta niður laugaveginn og hanga á kaffihúsum.. allt svoleiðis verður að vera planað með 5 daga fyrirvara8|

nei nú hætti ég þessu væli.. þetta er nú ekki alslæmt, ég hef nú einu sinni hann Dodda minn;) það er bara svo undarlegt hvað lífið er að breytast alltí einu mikið.. það heitir víst að verða fullorðin og mér finnst ég bara ekki vitund tilbúin til þess, finnst ég vera algjör krakki ennþá.. ætli manni finnist maður einhvern tímann vera orðin fullorðin??


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 20:36:38 / silja

Próf á mánudaginn og ZERO einbeiting

Þetta gengur ekki lengra!!!!!

ég er að fara í fyrsta prófið mitt á mánudaginn og ég næ ENGRI nákvæmlega ENGRI einbeitingu.. Ég held athygli í max 15 sek en það eru tvær setningar.. svo finn ég mér ALLT bara allt annað að gera.. búin að google sjálfa mig svona 5 sinnum og alla sem ég þekki... Og það besta er að ég er að lesa undir mannauðsstjórnun og mér finnst það skemmtilegasta fagið!!! hvernig verður það þegar ég les undir hin prófin össössöss.....

Jæja ég bara varð að deila þessari gremju með ykkur kæru vinir 

Annars er minnst að frétta.. bara búin að vera læra sl. viku og mega dugleg í ræktinni.. já ég ætla sko ekki að fitna í prófunum enn eina ferðina, það er alveg á hreinu8)

En það bregður nú til tíðinda annað kveld því ég er að fara á X factor með mínum heittelskaða.. mega rómó;)   Hún elskulega tengdamamma gaf okkur miða, það verður án efa skemmtilegt, en ekki búast við að sjá mig stríðsmálaða með "I love Jógvan"  eða álíka slagorð á stóru flaggi... bara ekki minn stíll jú nó vatt æ mín :$ hehehe

Nei að öllu gamni sleppt þá hlakkar mig helling til og það verður hörku gaman ;)

Ég og Ólöf ákváðum til tilbreytingar að skella okkur í World Class í laugum en venjulega æfi ég í Sporthúsinu.. við fundum að sjálfsögðu út að Sporthúsið væri mun skemmtilegri líkamsrækt en ég skal þó viðurkenna að tækin eru betri í World Class....

Nóg af blaðri um ekki neitt, ég ætla að halda áfram að stara á blaðið sem ég er búin að vera með í höndunum ALLTOF lengi og reyna að kreista einhverja visku inní þennan þrjóska haus minn..wish me luck:haha: 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 19:34:06 / silja

þetta verður eðal mánuðir - ekki spurning

Þá er maður komin aftur í höfuðborgina úr sveitasælunni - það var bara æði að fara heim.. hverjum finnst ekki gott að koma heim :haha:

Það er samt soldið skondið að fá þessa tilfinningu bæði þegar ég kem norður og líka þegar ég kem aftur í bæinn, þessa "Ohh hvað er gott að koma heim" tilfinningu.. Ekki amalegt skal ég segja ykkur - en þið kannist svosem öll við þetta sem eruð flutt að heiman frá foreldrum sínum.. Ég á líka mömmu sem dekrar mig extra mikið þegar ég kem heim því ég kem nú ekki það oft ;) Alltaf verslað nóg af gotteríi og alkahóli svo maður geti legið í makindum sínum alla helgina og bætt á sig nokkrum óvelkomnum:$

Þessa dagana er ég að upplifa svona lognið á undan storminum, prófin á næsta leyti og fjöldinn allur af skilaverkefnum.. úff.. þess vegna ætla ég að njóta þess að slaka á núna, vitandi til þess að það verður ekki aftur fyrr en í maí :$ Svo eru náttla allar þessar árshátíðir núna í mars.. ég fann mér kjól sem ég er reyndar bara búin að taka frá.. vildi ekki alveg kaupa þann fyrsta sem ég sá, ætla kíkja á laugaveginn á morgunn svona til tilbreytingar, veit ekki einu sinni lengur hvaða búðir eru þar.. En svo fór ég líka í make up store áðan og lét afgreiðslustúlkuna sem var með eindæmum almennileg, hjálpa mér að finna augnskugga og henni tókst að selja mér eyelashes líka.. bara grooví ;) svo það er eins gott að maður missi sig nú ekki í kokteilunum og verði komin heim fyrir miðnætti eins og á seinustu HR árshátíð.. missti af Pál Óskari og alles.. frekar skúffuð daginn eftir:$ - en svona er þetta þegar maður ætlar nú aldeilis að detta í það og skemmta sér, þá er maður fyrstu heim..svo þegar maður ætlar bara rétt að kíkja í einn til tvo öllara því maður er nú einu sinni að fara að læra fyrir próf daginn eftir eða eitthvað álíka..þá er maður að alla nóttina - ég veit að allir kannast við þetta, er þaggi??

Já og nú skal ég segja ykkur fréttir.. hann litli bróðir minn er orðin unglingur...össössöss, þegar ég sá hann seinast þá var hann bara krakki og svo núna, bara púff alltí einu var hann einhvern veginn ekki krakki lengur, samt er hann bara 12 ára.. voðalega þroskaður eitthvað - áður en ég veit af verður hann fluttur inná mig þegar hann kemur í skóla í bæinn, mig reyndar hlakkar agalega til að fá hann, þá verður maður nú vonandi búin að kaupa sér íbúð og koma sér fyrir;) Læt hann svo taka til fyrir ríkisferðum hahahaha.. eins gott að mútta fari ekki að lesa bloggið mitt :haha:

jæja.. á maður ekki að fylgjast með Britains next top model í kvöld síðan ;) gæti orðið spennó

Þangað til næst síja :haha:

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 14:08:19 / silja

Long time, no seen

Komin helgi hjá mér og samt bara fimmtudagur:haha: Ég ætla að nota þessu löngu helgi og skella mér í sveitina á eftir.. þar er alltof langt síðan ég hef farið heim í sveit, hef ekkert komist alla önnina því annaðhvort er skóli á laugardegi eða vinna alla helgina.. en svona er þetta víst, þetta valdi ég þegar ég ákvað að skrá mig í skóla.. ekki að ég sjái eftir því, alls ekki - var í prófi áðan í Fjármálum og það gekk bara svona ljómandi vel:haha:

Svo eru árshátíðirnar á næsta leiti, ein í skólanum, ein í vinnunni minni og ein í vinnunni hans Dodda - já þetta verður dýr mánuður, sérstaklega þar sem mig vantar kjól líka...:$

Hvað er samt málið hjá öllum að stinga af til útlanda á ammælinu mínu, meira að segja mín eigin fjölskylda ætlar út um páskana.. það er eins gott að ég fái almennilega afmælisgjöf í staðinn :haha::haha:

Ohh hvað verður samt notó um helgina í sveitinni.. og viti menn það er meira að segja komin Skjár 1 og Sirkus heima í sveit. og ekki má gleyma ADSL inu sem er loksins komið. jáhá tækninni alveg fleygir áfram - líka í sveitinni ;) - ég ákvað að taka sem minnst með mér að skólabókum, fyllti frekar töskuna af bjór og rauðvíni hehehe - hljómar það ekki miklu betur ;)

En nóg af blaðri um ekki neitt, hafið það ljómandi gott um helgina, i know i will ;);)

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 20:51:52 / silja

2007

Ég er svooo dugleg að blogga að það hálfa væri hellingur :$

Jólin mín voru yndisleg en eins og kannski flestir eru búnir að heyra þá skellti Doddi sér á skeljarnar á aðfangadag og bað mín, bara rómó:haha: og ég grenjaði síðan allt kvöldið (ég græt alltaf þegar ég verð mjög hamingjusöm:$ ) Svo valdi hann líka fullkomna hringa, ég hefði ekki getað valið betur

Áramótunum eyddum við í paradise city a.k.a Hvammstanga og það var bara gaman, það var étið og drukkið, sofið og síðan étið og drukkið aðeins meira. Svo var að sjálfsögðu ball í félagsheimilinum, 1000 kall inn og maður tók vín með sér, já það borgar sig að halda uppá ármót í sveitinni ef maður ætlar að spara ;)

Við ætlum að skella okkur á skíði á morgunn ef það verður opið í Bláfjöllum og við erum semsagt Doddi og tengdaforeldrar mínir, þau eru mikið skíðafólk og Doddi minn var einu sinni að æfa skíði og er miklu betri á skíðum heldur en kærastinn hennar Eddu (hehehe).. En ég já hef einu sinni farið á skíði og það var í 9. bekk, semsagt fyrir 7 árum, já þetta verður skrautlegt :haha::haha: Svo ætlar bekkurinn minn að fara á skíði næsta föstudag og ég ætla ekki að vera MESTI lúðinn hehe

Ég og Gugga vorum rosa duglegar áðan, fórum í 1 og 1/2 tíma göngutúr við rauðavatn og það var ekkert smá hressandi - ég veit ekki hversu langt það er síðan ég fékk frostbitnar kinnar. Jæja - ég læt vonandi heyra í mér aftur innan mánaðar hehe - 8)8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 14:34:17 / silja

Jól, jólasveinn, jóladagur, jólatré, jólamatur, jólapakki, jólakveðja

Gleðileg jólin elsku krúttin mín!! :D:D

hafið það innilega gott og rómantískt um jólin, borðið nóg, sofið nóg og gerið ekki neitt nema njóta lífsins


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 20:11:19 / silja

Rómó rómó jólaljós

Er ekki komin tími til að blogga - svei mér þá ég held það barasta

Annars er MINNST að frétta af mér þessa dagana - læri læri læri próf próf próf

Fór í 3 prófið í dag og á þarafleiðandi 2 eftir - rúmlega hálfnuð ekki amalegt það8)

Ég ætla að stelast í prófunum og skella mér á jólagleði í vinnunni á föstudaginn og mig hlakkar ýkt mega til - það verður matur, skipst á gjöfum og nýliðar(thats me) BUSAÐIR 8|- já hinn sannkallaði jólaandi :haha::haha:

Svo er ég að vinna á aðfangadag til kl 16 svo það verður enginn sveitasæla um jólin, verð með Dodda hjá tengdó - jiii hvað það verður skrýtið að vera ekki með familien um jólin, ég mun örugglega gráta mig í svefn:cry::cry:   nei nei ég hlýt nú að lifa það af

Svo verður bara brunað norður eftir jól - líklega 3 í jólum, Doddi verður enn að vinna en ég ætla bara á undan honum:lol: -

Jiminn ég er alveg farin að plana jólin - greinilegt að sumir eru komnir í jólafílinginn, ég verð alltaf svo voðalega væmin og meyr um jólin en hver verður það svosum ekki - brosi alltaf eins og bavíani þegar ég sé jólaljósin og meira að segja þegar ég var að fylgjast með öllu brjálæðinu og kaupæðinu í kringlunni áðan - "andvarp" já hvað finnst manni ekki jólalegt um jólin ég bara spyr. Hérna uppí vinnu er líka komið c.a 5 metra hátt jólatré og ég er ekki að ýkja - það var líka rosa gaman að fylgjast með köllunum að koma því inn um dyrnar, tók c.a hálftíma og aftur ég er ekki að ýkja.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 20:34:31 / silja

úrtaksdreifni og öryggisbil

Læra læra læra læra - næstu daga mun ég verða vant viðlátin. Þannig er mál með vexti að lokaprófin eru að hefjast næstkomandi þriðjudag. Heilinn er nú þegar orðin gegnsýrður af tölfræðiformúlum svo ég sé ekki fyrir endann á þessu:(:(

Mér finnst svo innilega ekki vera föstudagskvöld, meira svona mánudagur.. við Begga Kummer vorum uppí mbl áðan og það var partý á neðri hæðinni - verkfræðideildin hefur lokið prófum og voru allir að drekka og hafa gaman meðan biðið var eftir rútunni á ballið.. Við vorum EKKI abbó ónei 8|

Ég og amma vorum að horfa á Herra Ísland í gær og váá er þetta úrvalið að karlmönnum íslands í dag :$:$- alveg bless sko. Annað hvort voru þeir grindhoraðir eða hobbitar og allir búnir að hella yfir sig fullri fötu af kúkabrúnappelsínugulri málningu, alveg 5 sinnum:!::!: En við hverju á maður annars að búast ALVÖRU karlmenn taka ekki þátt í Herra Ísland - ég held að allflestar stelpur séu sammála mér þar:!::!: Alvöru karlmenn eru í skítugum vinnufötum með grófar vinnumannshendur og jú VÍST JANA:!: mín var líka ansi sátt þegar Doddinn fór að vinna í rafvirkjun ;)

doddi er sko lang flottastur og þegar að hann fer úr fötunum ó mæ god

Já þetta var Doddi að tjá sig, eins og þið heyrið þá þarf hann engan titil - egóið er alveg á réttum stað.. en wellwell ég ætla að halda áfram að eiga mér ekkert líf á föstudagskvöldi:haha::haha::haha::haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 15:57:45 / silja

HEIMA að blogga

Loksins loksins fékk ég nettengingu heima, langþráður draumur hefur ræst og nú get ég bloggað dag og nótt;)

Svo er líka merkisdagur í dag. Pabbi hefði orðið 43 ára í dag. Til hamingju með ammælið gamli :haha:

Ég fór á ball á föstudaginn eða réttara sagt uppskeruhátíð hestamanna á hvammstanga, það var matur, skemmtiatriði og ball - rossalega gaman. Ekki grunaði mig að Guðrún Ósk væri svona helv.. góður leikari, ég hló endalaust að henni þegar hún var að leika Malín og Dóri náði Gunna leifs alveg hrikalega vel - Ég var nú ekkert að ná mörgum djókunum þarna þar sem maður er ekki alveg lengur inní slúðrinu í sveitinni en það var bara svo gaman að sjá týpurnar sem þau voru að leika...

Eru allir búnir að kjósa gullkindina á http://konnunn.8.is/survey.php?uid=1455da7b3de1b1

þokkalega allt eða ekkert með snoze og öll 3 í innlit útlit, heill þáttur af aulahroll hlýtur að vera met. Reyndar var ég búin að heyra að Ásdís Rán hefði alveg gert gloríur í módel þáttunum en ég missti alveg af því - hún tók víst senu Tyru banks þegar hún er að fara að henda einni út og íslenskaði hana alveg "hér eru 11 fallegar stúlkur fyrir framan mig en ég hef aðeins 10 myndir í hendinni" Váá hvað ég sé eftir að hafa misst af því!!! Uppákoman er svo án efa Ásgeir Kolbeins í innlit útlit - svo ógeðslegt atriði, svo ógeðslega hallærislegt - bara ógeðslegt... hahaha mega fyndið.

Ég verð samt að segja að ég er drullumóðguð að sjá idolið mitt hann Bubba þarna og mæli með því að allir kjósi Snorra idol sem er hrikalegur tónlistarmaður með hrikalega boring lög

En well well best að hætta þessu blaðri um ekki neitt og gera eitthvað að viti eins og læra fyrir próf :lol:


» 6 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 16:26:28 / silja

nú á ég fullt af úrvals kartöflum dillerídí

Gleði gleði flöskudagur :haha:

plan vikunnar:

Föstudagskvöld; Ég og Ólöf ætlum að elda eitthvað gotterí saman og slaka á og gera þetta sem stelpur gera saman (þá er ég ekki að tala um koddaslag á nærfötunum strákar mínir, stelpur gera það bara í bíómyndunum)  :$

Laugardagur; Passa Ingu Höllu sem er krútt krúttanna, hlakkar í alvöru ógó mikið til, hef ekki passað frá því systkini mín voru lítil og það voru many eyars ago. Hún er líka svo hrikalega skemmtilegt barn og já það eru til leiðinleg börn, þessi sem grenja og öskra úr frekju og segjast ekki ætla bjóða manni í afmælið hjá sér - ég þoli ekki svoleiðis börn :evil: En ekki hún Inga Halla, hún brosir bara og hlær daginn út og daginn inn svo það verður góður morgundagur :haha:

Laugardagskvöld; Út að borða með Guggu vinkó, Hrafnkel kallinum hennar og Doddaling, ætlum á Caruso sem er með rosa góðan mat og ekkert over the budget expensive - svo kíkir mar bara í bæinn og fær sér nokkra öllara ;)

Sunnudagur; Mæta í skírn eiturferskur á Selfoss með tengdafólkinu

Eins og kannski glöggir tóku eftir þá er ekkert minnst á lærdóm í þessu plani og ástæðan er einföld ÉG ÆTLA EKKI AÐ SNERTA SKÓLABÓK UM HELGINA sem er nú kannski ekkert nýtt en nú er það fyrirfram ákveðið svo það verður ekkert samviskubit yfir því ;)

ég þarf nefnilega að safna kröftum fyrir lokaprófin sem eru á næsta leyti - þetta er semsagt mín prýðisgóða afsökun til að læra ekki neitt um helgina

En annars segi ég bara góða helgi vinir og vandamenn - gangið hægt um gleðinnar dyr


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 11:21:51 / silja

Singstar og brjálaður leigusali

Þá er enn einn mánudagurinn hafin - helgin var nú bara róleg, ætlaði í vísindaferð á föstudaginn en hún féll niður vegna lélegrar mætingar, hverskonar fólk er eiginlega í þessum skóla ég bara spyr :S

Ég kíkti með Ólöfu vinkonu í kennó í (já þar kann fólk að djamma hmm)þar var eitthvað alþjóðapartý og ég smakkaði finnskt súkkulaði. Þar hitti ég líka Fanney sem er að vinna með mér í MC og það vildi svo skemmtilega til að vinkona Ólafar sem við fórum að hitta er einnig vinkona Fanneyjar, Ójá alltaf er maður jafn hissa á því hvað Íslandi er lítið landi. Síðan kíktum við aðeins down town til að sýna lit, kíktum á Oliver og það var bara ljómandi gaman, eins og ég hef ekki haft mikið álit á þeim stað hingað til. Dyravörðurinn hann þarna fyndni sem var í fóstbræðrum sem ég man ekki hvað heitir ætlaði fyrst að kveikja í skilríkjunum mínum en þegar ég bannaði honum það beit hann í þau, það var frekar fyndið moment. Villa kom og hitti okkur í bænum og hún var eiginlega nýkomin þegar við ákváðum að fara heim (Sorry Villa mín:^) )Svo var ég bara komin uppí rúm rúmlega eitt og mætt uppí skóla daginn eftir með Villu að læra tölfræði. Doddi var hinsvegar með partý heima og leigusalinn alveg brjál, enda voru þeir vinnufélagarnir í singstar keppni ogjá við erum að tala um hóp af iðnaðarmönnum.. .heheh hefði verið gaman að sjá þetta en þeir voru farnir þegar ég kom heim, reyndar rak ég þá í bæinn því leigusalinn var alltaf að hringja í mig og kvarta yfir hávaða og ég var ekki einu sinni heima!!

Laugardagskvöldið gerði ég síðan nákvæmlega ekki neitt - glápti bara á glænýja imbann minn (sorry Doddi, imbann OKKAR) hehe.. Svo á sunnudaginn fór ég bara í vinnunna  - þannig var þá þessi helgi í hraðspólun...

Nú styttist óðum í lokapróf, tæpir 30 dagar úfff og púff segi ég nú bara, en við horfum á björtu hliðarnar og segjum frekar; nú styttist óðum í jólafrí eða tæpir 45 dagar húrra húrra - Gleðileg jól allir saman :haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 11:25:08 / silja

endalaust eirðarlaus

Váááááá hvað mér leiðist í tímaaaaaaaa - tölfræði er mest boring fag í öllum geiminum

Varð bara að deila þessu með ykkur:S


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 13:16:55 / silja

Skímó sökkar

Haldið ekki að ég hafi skellt mér á ball í Raufarhöfn um helgina. Ég og Doddi fórum með Halldóri frænda og Helgu á Stokkseyri til foreldra hennar og skelltum okkur á ball í reiðhöll með Skítamóral. Það var rosa gaman fyrir ballið en ballið sjálft var ekki uppá marga fiska - hljómsveitin var hreint út sagt ömurleg og aðgangseyrinn var ripp off:S

En svona er þetta ef maður fer á sveitaböll sem eru ekki á Norðurlandi vestra - þá á maður á hættu að þau séu hreint út sagt boring.

Á laugardaginn var afmæli hjá krútti krúttanna henni Ingu Höllu en hún er dóttir hennar Ástu mágkonu minnar fyrir þá sem ekki vita. Hún varð 1 árs:haha:. Hún er svo hrikalega skemmtilegt barn, alltaf brosandi og hlæjandi. Ég vona að mín börn verði svona glaðlynd en þegar ég var lítil stökk mér varla bros á vör, var alveg hrikalega alvarleg.  

ég er alveg að berjast við að finna eitthvað sniðugt að segja en ég verð bara að viðurkenna að ég er alveg blank núna - ég læt heyra í mér aftur þegar ég hef einhverjar skemmtilegar og krassandi sögur8| 


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Sumar og s�?�?�?³l
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1725 dögum
Klukkan